Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir opnar vinnustofu og galleri að Ormsvelli 5 á  Hvolsvelli þann 28 september. Opið verður milli kl. 12 og 18.  Dóra hefur stundað handverk og listiðnað í fjölda ára. Á staðnum verður boðið uppá verk eftir hana og innrömmunarþjónusta. 

Þessa dagana er Dóra að vinna í einum hluta þemaverkefnis í málverkum sem nefnast Augnablik á Íslandi. Hún hefur verið að undirbúa það í nokkur ár. Núna er hún að vinna að norðurljósa málverkum.Hún notar tæknina blautt í blautt.

Í TILEFNI AÐ OPNUNARDEGINUM mun Sólrún Björk myndlistamaður og kennari vera með sýnikennslu í olíumálverkum klukkan 14.00. Sólrún hefur lært hjá þekktum kennurum í Bandaríkjunum. Hún mun bjóða upp á kennslu í málaralistinni og verður hægt að skrá sig á námskeið hjá henni á opnunardegi Listakots Dóru. Þeir sem komast ekki þá geta haft samband við Dóru eða á Facebook síðu Listakots Dóru 

Opnunartími verður frá miðvikudegi til og með föstudegi frá klukkan 10.00-18.00 nema ef um er að ræða sérstakar uppákomur eða námskeið.