Leikskólinn opnaði aftur eftir sumarfrí síðastliðinn mánudag. Börn og starfsfólk virðist endurnært eftir afslöppunina og það ríkir mikil gleði meðal manna. Þar sem margir eru enn í fríi eru tiltölulega fáir nemendur fyrstu daganna. Veðrið leikur við okkur og því höfum við verið mikið utandyra, bæði í garðinum okkar sem og í vettvangsferðum um bæinn.

Nemendur Tónalands tóku sig til í dag og máluðu heyrúllur sem staðsettar eru á bak við Frumherjahúsið, okkur fannst þær heldur „venjulegar“ og ákváðum því að skreyta þær örlítið. Afraksturinn var glæsilegur og óneitanlega er glaðlegra yfirbragð yfir túninu núna. Við hvetjum fólk til að fá sér göngutúr eða bíltúr og skoða þessi óvanalegu listaverk.