Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Apríl 2021
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er kynnt lýsing að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.
Ráðagerði – Lýsing aðalskipulagsbreytingar
Í gildandi aðalskipulagi er svæðið Ráðagerði L224947 skilgreint sem frístundabyggð F-368. Í tillögu að breytingu er fyrirhugað að heimila svæði til efnistöku, haugsetningar og landmótunar m.a. til framkvæmda innan frístundabyggðarinnar.
Ofangreind skipulagslýsing verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, mánudaginn 19. apríl 2021 kl. 10:00 – 12:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við skipulagslýsinguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 3. maí 2021.
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024.
Rein og Birkilundur – Aðalskipulagsbreyting
Meginmarkmið breytingarinnar er að landnotkun á 3,2 ha svæði, sem eru lóðirnar Rein L164318 og Hlíðarból lóð (Birkilundur) L164126 í Fljótshlíð, verður breytt í íbúðabyggð (ÍB).
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.
Rein og Birkilundur – Deiliskipulagstillaga
Tillagan tekur til tveggja lóða, Rein L164138 og Hlíðarból lóð (Birkilundur) L164126. Gert verður ráð fyrir íbúðarhúsi, gestahúsi og skemmu/geymsluhúsi á hvorri lóð. Hámarksbyggingarmagn á hvorri lóð er 600 m2.
Ofangreinda deiliskipulagstillögu ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 14. apríl 2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemd til 26. maí 2021. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi