Opið er fyrir unglinga fædda 2010–2013 til skráningar í vinnuskóla Rangárþings eystra fyrir sumarið 2026 til 25. maí.

Í ár er starfstími vinnuskólans frá 1. júní til 31. júlí.

Ungmennum fæddum 2010–2012 gefst kostur á vinnu allt tímabilið en ungmennum fæddum 2013 gefst kostur á vinnu á tímabilinu 1. júlí – 31. júlí.

 

Vinnutími vinnuskólans er á mánudögum til fimmtudaga frá klukkan 8:30 til 15:30 og á föstudögum milli 8:30 og 11:30. Börn fædd 2013 geta ýmist valið að vinna fyrir eða eftir hádegi á mánudögum til fimmtudaga.

 

Dagatal Vinnuskólans 2026 (birt með fyrirvara)

 

Umsóknareyðublöð eru hèr á heimasíðu Rangárþings eystra

 

Fundur með umsækjendum og forráðamönnum þeirra verður auglýstur þegar nær dregur.