Í síðustu viku fór fram úthlutun úr íþrótta- og afrekssjóði Rangárþings eystra þar sem ungir og efnilegir íþróttamenn, búsettir í Rangárþingi eystra, hlutu styrki fyrir framúrskarandi árangur á undanförnum misserum. Markmið sjóðsins er að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og framfarir íþróttafólks í sveitarfélaginu og er ljóst að hæfileikar og metnaður þeirra sem hlutu styrki í ár lofa góðu fyrir framtíðina.

Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn þann 27. febrúar og rann umsóknarfrestur út 17. mars. Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd Rangárþings eystra fór yfir innsendar umsóknir og tók ákvörðun um úthlutun styrkja að þessu sinni.

Eftirtaldir íþróttamenn hlutu styrki:

Ívar Ylur Birkisson hlaut 85.000 króna styrk fyrir glæsilegan árangur í frjálsum íþróttum. Hann hefur náð framúrskarandi árangri með Íslandsmeistaratitlum í karlaflokki og þátttöku á Norðurlandamóti. Meðal afreka hans eru Íslandsmeistaratitlar í 60 m grindahlaupi karla og í flokki 18–19 ára árið 2026, 7. sæti á Norðurlandameistaramóti U20 í 110 m grindahlaupi árið 2025, auk Íslandsmeistaratitla í hástökki og 110 m grindahlaupi í flokki 16–17 ára bæði innan- og utanhúss.

 

Magnea Furuhjelm hlaut 70.000 króna styrk fyrir framúrskarandi árangur í frjálsum íþróttum. Hún hefur unnið fjölda Íslandsmeistaratitla og náð lágmörkum fyrir úrvalshóp FRÍ í þremur greinum. Meðal helstu afreka hennar eru fjórir titlar á HSK móti 15 ára 2026, tvöfaldur Íslandsmeistaratitill á Meistaramóti Íslands 15–22 ára, og gullverðlaun í langstökki og þrístökki á Reykjavík International Games 2026.

 

Alexander Úlfar Antonsson hlaut 55.000 króna styrk fyrir árangur í knattspyrnu. Hann hefur verið valinn í úrtakshóp landsliðsins og tók þátt í UEFA Development Tournament á Englandi með U15 landsliðinu. Alexander æfir og keppir með Selfossi.

Védís Ösp Einarsdóttir hlaut 45.000 króna styrk fyrir árangur í knattspyrnu. Hún hefur verið valin í úrtakshóp U19 landsliðsins og var lykilleikmaður í meistaraflokki Selfoss sem sigraði bæði C-deild Lengjubikars og 2. deild kvenna á síðasta tímabili. Þá tók hún þátt í sérhæfðum leikstöðuæfingum varnarmanna hjá KSÍ.

Bryndís Halla Ólafsdóttir hlaut einnig 45.000 króna styrk fyrir árangur í knattspyrnu. Hún hefur verið kölluð í úrtakshópa U15 og U16 landsliðsins og æfir og leikur með bæði 3. flokki og meistaraflokki Selfoss.

Rangárþing eystra óskar styrkþegum innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar til að fylgjast með þeim halda áfram að ná langt í sinni íþrótt. Stuðningur sem þessi er mikilvægur liður í að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og styðja við efnilegt íþróttafólk til framtíðar.