Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra hefur tilkynnt handhafa umhverfisverðlauna sveitarfélagsins. Verðlaunin eru veitt þeim íbúum og rekstraraðilum sem leggja sig fram við að halda umhverfinu snyrtilegu og eru öðrum góð fyrirmynd.

Fallegasti garðurinn: Króktún 11 Anna Kristín og fjölskylda að Króktúni 11 hljóta verðlaunin fyrir fallegasta garðinn. Þau leggja metnað í að halda garðinum fjölbreyttum, blómlegum og snyrtilegum. Auk þess að sinna eigin garði hefur Anna Kristín verið dugleg við að aðstoða nágranna sína við garðvinnu ásamt því að leggja hönd á plóg við umhirðu á opnum svæðum í sveitarfélaginu.

Gina Christie tók við verðlaununum fyrir hönd Önnu Kristínar.

 

Stofnun eða fyrirtæki til fyrirmyndar: Fögruhlíð Gistiheimilið í Fögruhlíð fær viðurkenningu sem snyrtilegasta fyrirtæki sveitarfélagsins. Guðlaug og Hlynur tóku nýverið við rekstrinum og hafa á stuttum tíma tekið vel til hendinni. Þau hafa snyrt gróður og bætt ásýnd Fögruhlíðar þannig að vel tekur á móti þeim sem keyra um Fljótshlíðina.

Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir og Hlynur Snær Theódórsson taka við viðurkenningunni frá Bjarka Frey Sigurjónssyni varformanni skipulags- og umhverfisnefndar. 

Snyrtilegasta býlið: Uppsalir Uppsalir fá umhverfisverðlaun fyrir snyrtilegasta býlið. Ábúendur á Uppsölum eru Ísólfur og Steinunn, Margrét og Þórður, ásamt Kolbeini, Berglindi og fjölskyldum. Þar er mikill metnaður lagður í að halda umhverfinu frágengnu, ekki síst á og við hlöð eignarinnar. Lögð er áhersla á gott samspil búsetu og skógræktar þar sem sérstaklega er hugað að heilbrigði skógarins með reglulegri grisjun og umhirðu.

Ábúendur og fjölskyldan á Uppsölum

Sveitarfélagið óskar verðlaunahöfum til hamingju og þakkar þeim fyrir þeirra framlag til umhverfismála í Rangárþingi eystra.