- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Nú stendur yfir vitundarvakningin Gulur september um allt land og viljum við í Rangárþingi eystra leggja þessu mikilvæga málefni lið. Í þessum mánuði er lögð áhersla á að auka meðvitund um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.
September varð fyrir valinu vegna þess að alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er einmitt 10. september og alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er síðan 10. október. Gulur er litur sjálfsvígsforvarna og semikomman (;) er kennimerki átaksins. Hún er víða notuð til að sýna samstöðu ásamt því að vísa til framhalds, seiglu og vonar. Slagorð vitundarvakningarinnar er „Er allt í gulu?“ og snýst það um samkennd og að láta sig náungann varða.
Í dag, fimmtudaginn 10. september, er hinn formlegi „guli dagur“. Við hvetjum íbúa, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu okkar til að sýna lit í dag eða á öðrum dögum mánaðarins eftir því sem veldur. Hægt er að sýna samstöðu á einfaldan hátt, til dæmis með því að klæðast gulu, setja upp gult skraut eða bjóða upp á gular veitingar. Gott er að deila myndum af stemningunni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember. Markmiðið er einfaldlega að hlúa saman að geðheilsunni og rækta samstöðuna í samfélaginu.
Við viljum jafnframt nota tækifærið og minna á að það er alltaf hjálp að fá ef líðanin er erfið. Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er opinn allan sólarhringinn. Einnig má leita til Píetasamtakanna í síma 552-2218, og upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar svarar í síma 1700. Í neyðartilvikum skal alltaf hringja í 112.
Verum dugleg að huga að okkur sjálfum og hvort öðru, ekki bara í september heldur alla daga ársins. Með því að taka þátt sýnum við samhug í verki og leggjum okkar af mörkum til góðs samfélags.
Nánari upplýsingar og fróðleik má finna á heimasíðu átaksins, gulurseptember.is.
Starfsmenn Kirkjuhvols sendu okkur meðfygljandi mynd en þar voru starfsmenn duglegir að mæta í gulu í dag.