Vegna framkvæmda Veitna við að svera hitaveitulögn verður Þjóðvegi 1 lokað við Hvolsveg, til móts við Björkina og Apótekið. Lokunin tekur gildi að kvöldi 13. ágúst klukkan 19:00 og stendur yfir fram til klukkan 07:00 morguninn eftir.

Á meðan á vinnu stendur verður umferð beint um hjáleið og má sjá hana nánar á meðfylgjandi korti.

Við biðjum íbúa og aðra vegfarendur að gera ráð fyrir þessari lokun í ferðaplönum sínum þessa nóttina, fylgja merkingum á svæðinu og sýna framkvæmdinni skilning.