Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tillögum til Umhverfisverðlauna Rangárþings eystra 2024
Miklu máli skiptir að íbúar sveitarfélagsins taki nú höndum saman og tilnefni þá sem skarað hafa fram úr í sveitarfélaginu við að fegra umhverfi sitt.
Nú er upplagt að setja upp vinnuhanskana, kaupa blóm, plöntur og annað garðaprýði og gera garðinn fallegan :)
Verðlaun verða veitt á Kjötsúpuhátíðinni í eftirtöldum flokkum:
Umhverfisverðlaun árið 2025 fyrir snyrtilegasta garðinn.
Umhverfisverðlaun árið 2025 fyrir snyrtilegasta býlið.
Umhverfisverðlaun árið 2025 fyrir snyrtilegustu stofnunina / fyrirtækið
Hægt er að skila inn tilnefningum á formi sem má nálgast hér.
Eins er hægt að hafa samband á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 488 4200 fyrir 10. ágúst nk.
Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra