Kæri viðskiptavinur,

Vegna rafmagnsleysis sem Rarik hefur boðað miðvikudaginn 14. maí frá kl. 00:30 til kl. 04:30, verða allar dælustöðvar á svæði Rangárveitna rafmagnslausar um stund. Þetta mun valda tímabundnu vatnsleysi eða lækkandi vatnsþrýstingi hjá flestum notendum á svæðinu.

Við gerum ráð fyrir að vatnsleysi geti varað frá kl. 00:30 til um það bil 06:30, þar sem tekur nokkurn tíma að koma þrýstingi aftur á kerfið eftir að rafmagn kemur á.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir þolinmæðina.

Kær kveðja,
starfsfólk Veitna

 

 

Þjónusturáðgjöf okkar er opin alla virka daga kl. 9:00 - 16:00 og neyðarsími allan sólarhringinn í síma 516 6161.​

Þú getur einnig sent okkur línu hér.