Það er frábært að sjá hversu blómlegt tónlistarlífið er hér í sveitarfélaginu og ungmennin okkar hæfileikarík. 

Þau Þórdís Anna Freysteinsdóttir og Steingrímur Ari Helgason hafa tryggt sér sæti í Söngvakeppni Samfés í ár og munu taka þátt fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Tvistsins.

Undirbúningur þeirra hefur skilað góðum árangri, en þau hófu leikinn á því að sigra Söngvakeppni Tvistsins sem haldin var í skólanum þann 4. mars síðastliðinn. Í kjölfarið tóku þau þátt í söngvakeppni USSS, sem fór fram á Flúðum síðastliðinn laugardag. Þar komust einungis tvær félagsmiðstöðvar áfram og tryggðu okkar fulltrúar sér annað sætið.

Næsta skref er svo sjálf Söngvakeppni Samfés sem fer fram þann 9. maí næstkomandi. Keppnin verður sýnd í beinu streymi á RÚV, þannig að íbúar og aðrir áhugasamir geta fylgst með.

Við óskum Þórdísi Önnu og Steingrími Ara velgengni í undirbúningnum og keppninni sjálfri.