- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Samfestingurinn fór fram um helgina þar sem um 4.500 unglingar alls staðar af landinu komu saman til að taka þátt í einum stærsta viðburði félagsmiðstöðva ársins. Föstudagskvöldið einkenndist af mikilli stemningu á balli hátíðarinnar sem fram fór í Laugardalshöll en á laugardeginum fór síðan fram Söngkeppni Samfés.
Þar náði Þórdís Anna frá félagsmiðstöðinni Tvistinum í Rangárþingi eystra frábærum árangri þegar hún hafnaði í öðru sæti keppninnar eftir glæsilega frammistöðu á sviðinu. Steingrímur Ari lék svo lista vel undir á píanó.
Að undirbúningi atriðisins komu meðal annars leiðbeinandinn Ingibjörg Erlendsdóttir ásamt starfsmönnum félagsmiðstöðvarinnar, þeim Axel og Rebekku, sem hafa unnið með keppendum úr Tvistinum í undirbúningi fyrir keppnina.
Söngkeppni Samfés hefur í gegnum tíðina verið mikilvægur stökkpallur fyrir ungt tónlistarfólk á Íslandi og margir þekktir listamenn hafa stigið sín fyrstu skref þar. Árangur Þórdísar Önnu og Steingríms er mjög góður og óskum við þeim innilega til hamingju.