- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Stjórnvöld hafa opnað fyrir vefkönnun þar sem kallað er eftir tillögum að því hvernig megi einfalda regluverk í kringum verkefni sveitarfélaga.
Öll ráðuneyti í Stjórnarráðinu koma að þessu mikilvæga verkefni, hvert á sínu sviði, en innviðaráðuneytið leiðir vinnuna. Markmiðið er að leita leiða til að gera stjórnsýsluna skilvirkari og bæta þar með þjónustu við íbúa.
Við hjá Rangárþingi eystra hvetjum íbúa, starfsfólk og aðra áhugasama til að kynna sér málið og leggja orð í belg. Góðar ábendingar úr grasrótinni skipta máli þegar kemur að því að móta betra og einfaldara umhverfi fyrir sveitarfélögin okkar.
Allir eiga kost á því að senda inn sínar tillögur í gegnum Samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að taka þátt er til og með 10. mars nk.