Systurnar Sigríður og Hulda Sigurjónsdætur frá Mið-Mörk tóku þátt í Evrópumóti Special Olympics í bekkpressu sem fór fram í Druskininkai í Litháen þann 2. ágúst síðastliðinn. Þær eru fyrstu íslensku keppendurnir með fötlun sem taka þátt í Evrópumótinu í þessari grein og stóðu sig báðar mjög vel.

Sigríður varð Evrópumeistari í sínum flokki og hlaut gullverðlaun. Hún lyfti 77,5 kílóum og jafnaði þar með eigið Íslandsmet. Hulda hafnaði í öðru sæti og vann til silfurverðlauna, en hún lyfti 75 kílóum sem er jöfnun á hennar besta árangri hingað til í bekkpressu.

Árangur þeirra er mikilvægur áfangi fyrir íslenskar kraftlyftingar og starf Special Olympics á Íslandi. Að baki þessum árangri liggur mikil vinna, dugnaður og metnaður. Með þátttöku sinni greiða þær jafnframt leiðina fyrir fleiri íþróttamenn með fötlun sem stefna á alþjóðlegar keppnir.

Aðstandendur systranna hafa komið á framfæri þakklæti til allra sem hafa stutt þær á þessari vegferð og tekið fram að árangurinn hefði ekki náðst án þess stuðnings. Þá kemur jafnframt fram að þökk sé góðum stuðningi og ábyrgri fjármálastjórn Sigríðar hafi fjármunir úr fyrri söfnun dugað til að fjármagna þessa ferð.

Sveitarfélagið Rangárþing eystra óskar Sigríði og Huldu innilega til hamingju með þennan árangur. Þær eru sveitarfélaginu til sóma og góðar fyrirmyndir innan íslensks íþróttalífs.