Markaðs- og menningarnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um sveitarlistamann Rangárþings eystra 2025.
 
Til greina koma allir þeir íbúar sveitarfélagsins sem stunda listir af einhverju tagi.
 
Viðurkenning fyrir Sveitarlistamann Rangárþings eystra verður veitt í 12. sinn í ár á Kjötsúpuhátíðinni þann 30. ágúst nk.
 
Tilnefningar óskast sendar á þessu formi fyrir 22. júlí nk.