- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Starf varaslökkviliðsstjóra hjá Brunavörnun Rangárvallasýslu bs. var auglýst laust til umsóknar þann 24. júlí 2026 og var umsóknarfrestur um starfið til og með 9. ágúst 2026. Alls voru fimm umsækjendur um starfið, en tveir drógu umsókn sína til baka. Sigríður Ólafsdóttir ráðgjafi hjá Mögnum hafði umsjón með ráðningarferlinu f.h. Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Í kjölfar ráðningarferlis var ákveðið að ráða Sveinbjörn Má Birgisson sem varaslökkviliðsstjóra Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Sveinbjörn er löggiltur slökkviliðsmaður, hefur lokið eldvarnareftirliti I og II frá Brunamálaskólanum, lokið stjórnenda- og þjálfunarstjóranámi HMS og býr yfir ökuréttindum til aksturs vörubifreiða (C réttindi). Þá liggja fyrir starfsréttindi sem reykkafari auk umfangsmikillar námskeiðs- og þjálfunarsögu á sviði brunamála og almannavarna.
Hann hefur hefur lokið námi sem vélvirki og hefur áralanga reynslu af viðhaldi véla, búnaðar og tækja. Bæði úr starfi sínu við viðhald á vélum og búnaði hjá Sláturfélagi Suðurlands og frá því að hafa um árabil komið að viðhaldi, viðgerðum og nýsmíði búnaðar fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu.
Sveinbjörn hefur starfað hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu frá árinu 2000 sem slökkviliðsmaður og frá árinu 2018 sem varðstjóri með stjórnendabakvaktir. Hann býr því yfir afar umfangsmikilli reynslu af starfsemi slökkviliðs og þekkingu á starfsemi brunavarna og viðbragðsþjónustu.
Sveinbjörn mun hefja störf hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu á næstu vikum. Við bjóðum Sveinbjörn velkomin til starfa.