Í sumar ætlum við að halda áfram með skemmtileg sumarnámskeið á miðvikudögum frá 16:30–18:00. Á námskeiðunum verða fjölbreyttir leikir, skemmtilegar æfingar og frábært tækifæri til að bæta sig í pílu á meðan við höfum gaman saman. Við munum einnig halda utan um meðalskor allra þátttakenda yfir sumarið svo hver og einn geti fylgst með framförum sínum og þróun.

Síðasta æfing sumarsins verður síðan auglýst síðar, en þá ætlum við að enda sumarið með skemmtilegu móti með öllu tilheyrandi Viðurkenningar verða veittar og við gerum glæsilega lokahátíð úr því.

Endilega skráið ykkur og verið með – því fleiri, því skemmtilegra!