Námskeiðið er fyrir öll börn fædd 2010-2017, hvort sem þeir hafa tekið þátt í námskeiðum Geysis áður eður ei. Vikan er námskeið í hestamennsku svo börnin taka þátt í öllu sem snýr að því að taka hest og þjálfa á sumartíma. Við sækjum hestana út á beit, kembum, förum yfir hestana, leggjum við og á, förum á bak og fræðumst um ýmsa þætti tengt hestum. Nemendur koma með hádegismat í nesti til að setjast niður í spjall og mat í lok dags. Við tökum einnig morgun-kaffitíma saman í boði Stakkholts.

Ein vika, mán-fim (4d) frá 09:00 til 13:00

Fyrir börn fædd 2010-2017

Staðsetning: Miðkriki Hvolsvelli

Tvær vikur í boði:

  • 1.-4. júní kl. 09:00-13:00

  • 8.-11. júní kl. 09:00-13:00

ISK 37.000 á barn, innifalið:

Hestar, reiðtygi, kaffitími, hjálmur og vesti

Skráning inni á Abler hjá Hestamannafélaginu Geysi

Ef lágmarksþátttaka næst ekki í hóp verður reynt að sameina og vikur geta fallið niður