Það hljóp heldur betur á snærið hjá starfsfólki skrifstofu Rangárþings eystra í morgun þegar starfsfólk VISS kom færandi hendi en þau byrjuðu daginn á því að skella í bollur. Í hádeginu fékk starfsfólk skrifstofunnar að bragða á bollunum og var það samdóma álit starfsfólksins að þetta væru ljómandi góðar bollur. Við þökkum starfsfólkinu á VISS kærlega fyrir sendinguna.