Starf fulltrúa á skrifstofu Rangárþings eystra er laust til umsóknar. Starfshlutfall er 100%.
Starfssvið
- Móttaka og almenn skrifstofustörf
- Ritari nefnda á vegum sveitarfélagsins
- Aðstoð við gerð samninga, reglna og ýmissa skjala á skrifstofu sveitarfélagsins
- Öll almenn störf gjaldkera
- Afleysingar í fjárhagsdeild sveitarfélagsins. Færsla bókhalds, afstemmingar, reikningagerð og svo frv.
- Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu sveitarfélagsins.
Hæfniskröfur og menntun:
- Stúdentspróf – háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Nám til viðurkenningar bókara
- Reynsla og þekking á bókhaldi er skilyrði og þekking á bókhaldi sveitarfélaga mikill kostur.
- Mjög góð færni á rituðu máli
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af OneSystem skjala- og fundakerfi æskileg
- Reynsla af Navision bókhaldskerfi skilyrði
- Nákvæmni og skipulagni í vinnubrögðum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
Starfskjör og laun eru í samræmi við samninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi.
Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri, sími 488-4200. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf sem ber að skila á netfang margretjona@hvolsvollur.is fyrir 14. mars 2022.