Umsjón með rekstri og þróun Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. í umboði stjórnar
Ábyrgð á móttökustöðinni á Strönd og grenndarstöðvum
Umsjón með skipulagningu sorphirðu
Umsjón með og sinna rekstri og viðhaldi bifreiða og véla
Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsmannahaldi
Ábyrgð á samskiptum við opinberar stofnanir og eftirlitsaðila
Þátttaka í áætlanagerð og eftirfylgni með áætlunum
Menntun sem nýtist í starfi
Þekking og áhugi á sviði umhverfis- og úrgangsmála
Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum
Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur
Krafa um almenna tölvukunnáttu og þekkingu á upplýsingatækni
Meirapróf og vinnuvélaréttindi kostur
Þekking á viðhaldi bifreiða og véla kostur
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 7 starfsmenn í föstu starfi auk 3-4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir I sigga@mognum.is og Eggert Valur Guðmundsson (eggertvalur@ry.is)
Umsóknarfrestur er til 12. mars. 2025
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um stöðuna.