- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Miðvikudaginn 4. mars næstkomandi verður hin árlega Söngvakeppni Tvistsins haldin í sal Hvolsskóla. Keppnin hefst klukkan 20:00 og er hún mikilvægur liður í félagsstarfi unglinga í sveitarfélaginu.
Keppnin er opin öllum nemendum í félagsmiðstöðinni Tvistinum og er til mikils að vinna. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, en sigurvegari kvöldsins mun jafnframt tryggja sér þátttökurétt fyrir hönd Tvistsins á söngvakeppni Samfés, sem fram fer 9.maí. Þá fá allir keppendur aukastig í Samfés-punktakerfi félagsmiðstöðvarinnar.
SamFestingurinn samanstendur af nokkrum viðburðum. Á föstudeginum koma unglingar og starfsfólk í rútum í Laugardalshöll á risa ball þar sem stór bönd spila fyrir dansi í bland við unga tónlistarmenn úr félagsmiðstöðvum. Á laugardeginum fer Söngkeppni Samfés fram sem er einnig send út í beinni útsendingu á RÚV. Þar stíga á stokk mörg af efnilegustu söng- og tónlistarfólki landsins. Ungmennaráð Samfés sér alfarið um að setja upp dagskránna og velja þá plötusnúða og hljómsveitir sem koma fram á SamFestingnum.
Það er alltaf ánægjulegt að sjá þann metnað sem ungmennin leggja í atriði sín og hvetjum við íbúa til að mæta og sýna keppendum stuðning.
Hvar: Salur Hvolsskóla Hvenær: 4. mars kl. 20:00