Söngvakeppni Tvistsins var haldin fimmtudaginn síðastliðinn í sal Hvolsskóla og voru 12 atriði sem komu fram. Það stóðu sig allir alveg ótrúlega vel og voru öll atriðin mjög flott. Við viljum þakka Ingibjörgu Erlingsdóttur tónlistarkennara í Hvolsskóla sérstaklega fyrir að hjálpa öllum krökkunum með sín atriði.

Dómarar voru Maríanna Másdóttir, Kristinn Ingi Austmar Guðnason og Valborg Ólafsdóttir.

Sigurvegarar keppninnar voru þær Unnur Kristín Sigurðardóttir sem söng lagið ,,Dansaðu” með Bubba Morthens, Freyja Magnúsdóttir sem spilaði á gítar, Úlfhildur Vaka Pétursdóttir var á bassa, Fanndís Lilja Lárusdóttir á píanói og Ólöf Brynjólfsdóttir sem var á trommum. Við óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn.

Þær keppa svo fyrir hönd Tvistsins á USSS (undankeppni söngvakeppni Samfés á Suðurlandi) sem er haldin í Njálsbúð þann 14. mars.