- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Tvistsins fór fram í gær miðvikudaginn 4. mars og var afar vel heppnuð. Alls voru 14 atriði á dagskrá þar sem ungmennin stigu á svið og sýndu fjölbreytta hæfileika í söng og flutningi. Stemningin var frábær og ljóst að tónlistaráhugi er mikill meðal ungmenna. Keppnin var haldin í matsal Hvolsskóla og voru fjölmargir áhorfendur.
Tónlist, tónlistarsköpun og hljóðfæraleikur gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna og ungmenna. Með þátttöku í slíkum viðburðum fá þau tækifæri til að tjá sig á skapandi hátt, efla sjálfstraust sitt og vinna saman að verkefnum. Söngkeppnin er því ekki aðeins skemmtilegur viðburður heldur einnig mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að rækta hæfileika sína og áhuga á tónlist.
Sigurvegari keppninnar var Þórdís Anna Freysteinsdóttir, sem heillaði bæði áhorfendur og dómara með glæsilegum flutningi. Í öðru sæti varð Bryndís Halla Ólafsdóttir og Unnur Kristín Sigurðardóttir, sem einmitt vann keppnina í fyrra, hafnaði í þriðja sæti.
Fyrir utan efstu þrjú sætin voru tvenn önnur verðlaun veitt. Eggert Orri Pálsson hlaut verðlaun fyrir öruggan flutning á sviði og Ólöf Brynjólfsdóttir fékk verðlaun fyrir lagið sem stóð upp úr, en hún flutti frumsamið lag eftir sjálfa sig.
Dómarar keppninnar voru Svala Norðdal, Einar Þór Guðmundsson og Hafdís Gígja Björnsdóttir, sem áttu það vandasama verkefni að velja úr sterkum hópi þátttakenda.
Umsjón með söngkeppninni var í höndum Ingibjargar Erlingsdóttur, tónlistakennara við Hvolsskóla, sem hefur unnið frábært starf með krökkunum og undirbúið þau vel fyrir sviðið. Starfsmenn félagsmiðstöðvarnarinnar þau Axel og Rebekka höfðu veg og vanda með öllu skipulagi keppninnar. Kynnar kvöldssins komu öll úr nemendahóp Hvolsskóla og stóðu þau sig öll mjög vel og settu skemmtilegan brag á kvöldið. Hljóðfæraleikur var svo einnig úr nemendahópnum og var gaman að sjá að mörg þeirra skiptu um hljóðfæri milli laga.
Sigurvegari keppninnar, Þórdís Anna, mun keppa fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Tvistsins á SamSuð söngkeppninni, þar sem félagsmiðstöðvar af Suðurlandi keppa um tvö laus sæti í Söngkeppni Samfés sem fram fer í maí.