Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi (USSS) fór fram síðastliðinn föstudag í Njálsbúð þar sem einstaklega hæfileikarík ungmenni stigu á svið.

Viðburðurinn gekk vel í alla staði og viljum við þakka Andra Geir og Arnari Gauta kærlega fyrir hjálpina og fyrir að gera kvöldið svona eftirminnilegt.

Fulltrúar Tvistsins í keppninni voru þær Unnur Kristín, Freyja, Fanndís Lilja, Ólöf og Úlfhildur Vaka en þær voru eitt af þremur atriðum sem komust áfram. Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim keppa í Söngvakeppni Samfés í maí. Þá viljum við þakka Ingibjörgu Erlingsdóttur fyrir að fylgja fulltrúum okkar alla leið og hjálpa þeim með atriðið sitt.

Eftir söngvakeppnina var svo ball þar sem hljómsveitin Krummafótur og Séra Bjössi héldu uppi stemmingunni langt fram á kvöld.