- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Við viljum vekja athygli á að veðurspáin fyrir næsta sólahring er nokkuð slæm, appelsínugul viðvörun frá um kl. 7 í fyrramálið fram á miðjan dag vestan til sem gengur síðan austur yfir land að einhverju leiti.
Nokkuð ljóst er að færð mun spillast að einhverju leiti og einnig er varað við hættu á foktjóni.
Gul
Suðaustan hvassviðri og hríð (Gult ástand)
26 mar. kl. 05:00 – 07:00
Suðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 33 m/s. Búast má við talsverðri snjókomu með skafrenningi og slæmu skyggni og versnandi færð. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar, einkum undir Eyjafjöllum eða á Hellisheiði. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Appelsínugul
Suðaustan rok og stórhríð (Appelsínugult ástand)
26 mar. kl. 07:00 – 13:00
Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk hvatt til að tryggja lausamuni.
Vegagerðin hefur einnig gefið út að vegir muni lokast vegna þessa svo sem Hellisheiðin og Þrengslin frá kl. 04.00 í nótt.
Við viljum biðja íbúa um að gæta sérstaklega að sér og fylgjast vel með veðurspá.