Skarphéðinsmenn á Smáþjóðaleikum
Fimm keppendur aðildarfélaga HSK keppa á leikunum í vikunni. Þar skal fyrstan nefna Hvergerðinginn Hafstein Valdimarsson sem var fánaberi Íslands ásamt Ernu Sóleyju Gunnarsdóttur kúluvarpara á setningarhátíð Smáþjóðaleikanna í fyrradag. Hafsteinn er í landsliði Íslands í blaki, líkt og Kristján Valdimarsson og Valgeir Valgeirsson, en þeir þrír koma frá Hamri í Hveragerði. Böðvar Arnarsson úr Judofélagi Suðurlands keppir í júdó og Selfyssingurinn Örn Davíðsson í spjótkasti.
Sunnlendingar eiga nokkra aðra fulltrúa á Smáþjóðaleikunum, en Hvergerðingurinn Snæfríður Sól Jórunnardóttir keppir í sundi. Magnús Ragnarsson úr Skotfélaginu Skyttum er flokksstjóri skotfimiliðsins og Selfyssingurinn Olga Bjarnadóttir, stjórnarkona í ÍSÍ, situr í tækninefnd leikanna. Þá er Ásmundur Jónsson frá Selfossi nuddari frjálsíþróttaliðsins og Steindór Gunnarsson úr Þykkvabænum er einn af sundþjálfurum íslenska hópsins.
Keppni á leikunum hófst í gær. Úrslit og keppnisdagskrá má sjá hér: Schedule and results - Jocs dels Petits Estats d'Europa
Í fyrsta sinn verður hægt að fylgjast með streymi af öllum keppnum Smáþjóðaleikanna á ANOC.tv: ANOC TV.
Upplýsingar um keppendur og fylgdarlið má finna hér: 2025 Andorra
Íslandsmet og HSK met bætt á Sumarmóti fyrir sunnan
Bryndís Embla Einarsdóttir, Umf. Selfoss, setti nýtt Íslandsmet í spjótkasti í flokki 16-17 ára á 1. sumarmóti ÍR sem haldið var á ÍR vellinum í Reykjavík þann 21. Maí sl.
Bryndís Embla kastaði 500 gr spjóti 46,32 m og bætti Íslandsmet Arndísar Diljár Óskarsdóttur, FH, frá árinu 2021 um 39 cm. Bryndís Embla bætti einnig eigið HSK met í flokknum en fyrra met hennar var 44,75 m. Bryndís Embla er á yngra ári í flokknum og keppnistímabilið nýbyrjað, þannig að gera má ráð fyrir að hún muni kasta enn lengra á næstu vikum.
Kristján Kári Ólafsson keppandi Umf. Selfoss þríbætti HSK metið í sleggjukasti í 16-17 ára flokki með 7,26 kg. sleggju. Hann kastaði lengst 35,80 m. Fyrra metið var 32,29 í eigu Benjamíns Guðnasonar.