- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi eystra, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Þann sama dag tekur yfirkjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum á skrifstofu sveitarfélagsins að Austurvegi 4, Hvolsvelli milli kl. 11:00 og 12:00.
Yfirkjörstjórn hefur samþykkt að nýta rafrænt meðmælendakerfi vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 2026. Forsvarsmaður framboðs stofnar meðmælasöfnun í sínu nafni með sínum rafrænu skilríkjum á vef island.is. Ef nöfnum meðmælenda er safnað á pappír er mælst til að forsvarsmaður framboðs færi nafnalista inn í rafrænt meðmælendakerfi.
Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar til framboða er að finna á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands, kosning.is.
Yfirkjörstjórn Rangárþings eystra.
Björn Ingi Jónsson
Gróa Hermannsdóttir
Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir