Framboðslistar sem bjóða fram til sveitarstjórnar boða til sameiginlegs framboðsfundar þann 12. maí nk. í Hvolnum kl. 20:00.
Fundarstjóri verður Valtýr Valtýsson sveitarstjóri Ásahrepps.
Hvert framboð hefur fimm mínútna framsögu og svo verður mælendaskrá opin.
Fundinum verður einnig streymt á miðlum sveitarfélagsins, Facebook og Youtube rás
Hvetjum íbúa Rangárþings eystra til þess að fjölmenna og kynna sér málin fyrir sveitarstjórnarkosningar.