Miðvikudaginn 15. apríl næstkomandi munu miðstigskórar Hvolsskóla og Flóaskóla leiða saman hesta sína og halda tónleika í Skálholtsdómkirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem fluttar verða klassískar perlur, bæði íslenskar og erlendar. Stjórnendur kóranna á þessum sameiginlegu tónleikum eru þær Ingibjörg Erlingsdóttir og Eyrún Jónasdóttir.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Við hvetjum íbúa til að gera sér ferð í Skálholt, styðja við þetta góða starf og eiga notalega stund.

Allir eru velkomnir og við hlökkum til að sjá sem flesta gesti.