Rangárþing eystra leitar að áhugasömum aðilum til að starfa í Fjölmenningarráði Rangárþings eystra kjörtímabilið 2026–2030.

Meginmarkmið ráðsins er að marka stefnu sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa, vera sveitarstjórn, nefndum og starfsfólki til ráðgjafar um málefni og hagsmuni innflytjenda og vera samráðsvettvangur innflytjenda í sveitarfélaginu.

Allir meðlimir ráðsins skulu vera innflytjendur á Íslandi og hafa lögheimili í Rangárþingi eystra. Ráðið fundar að jafnaði annan hvern mánuð og er greitt fyrir setu í ráðinu.

Rangárþing eystra óskar hér með eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í ráðinu og hjálpa til við að gera samfélagið enn betra fyrir okkur öll.

Nánari upplýsingar fást á netfanginu helgagudrun@hvolsvollur.is eða í síma 488-4200.

Skráning hér!