- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Í tilefni af Kjötsúpuhátíð mætti Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrverandi sveitarstjóri og alþingismaður, í viðtal þar sem farið var um víðan völl. Þar bar margt á góma, allt frá skógrækt á Uppsölum til upphafs byggðar á Hvolsvelli og blómatíma tónlistarinnar í félagsheimilinu Hvolnum.
Fjölskyldan á Uppsölum tók nýlega við verðlaunum en þar hefur verið sinnt skógrækt af miklum krafti síðustu áratugi. Á rúmum aldarfjórðungi hefur verið plantað þar yfir 200 þúsund trjám. Ræktunin hefur gefið góða raun, reynst nærandi fyrir sál og líkama og verið kærkomið mótvægi á annasömum tímum. Mikið líf er nú á svæðinu eftir að tvö barna hans byggðu sér hús þar og skólabíllinn mætir á hverjum morgni.

Saga Hvolsvallar stendur Ísólfi nærri enda rekur hann ættir sínar til upphafs byggðarinnar. Fyrsta íbúðarhúsið, Arnarhvoll, var byggt árið 1933 og er saga þess áhugaverð, en þar ólust á sínum tíma upp þrír drengir á mismunandi tímum sem allir urðu síðar doktorar á sínu sviði. Uppbygging sveitarfélagsins hefur verið mikil síðan þá. Nærtækt dæmi úr stjórnartíð Ísólfs er þegar Sláturfélag Suðurlands flutti starfsemi sína á Hvolsvöll árið 1991, sem var mikil lyftistöng fyrir nærsamfélagið.
Í viðtalinu koma einnig við sögu frumkvöðlaverkefni á borð við hjólreiðahátíðina Tour de Hvolsvöllur sem hófst smátt árið 1993, löngu áður en hjólreiðamenning varð jafn almenn og hún er í dag. Tónlistin er sömuleiðis aldrei langt undan og minnst er á skemmtileg atvik frá því þegar Rúnar Júlíusson og aðrir þekktir tónlistarmenn stigu á svið á böllum í Hvolnum.

Þess má einnig geta að Ísólfur Gylfi stýrir menningargöngu á Kjötsúpuhátíð sem haldin er árlega. Meðfylgjandi myndir eru frá menningargöngu Ísólfs á nýyfirstaðinni Kjötsúpuhátíð.
Við mælum eindregið með því að fólk gefi sér tíma til að hlýða á þetta góða spjall þar sem sagan og samfélagið okkar eru í forgrunni.
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér: Sagan skiptir máli

