- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Rotþróatæming í Rangárþingi eystra hefst 13. júlí. Gert er ráð fyrir að vinna í sveitarfélaginu taki u.þ.b. 8 vikur.
Í ár verður tæmt á tæmingarsvæði sem er afmarkað með bláu en það eru vestur Landeyjar, Merkurbæirnir og Eyjafjöllin. Byrjað verður að vestast og þaðan niður í Landeyjar.

Mikilvægt er að aðgengi að rotþróm sé gott og að rotþróin sé vel merkt. Gott er að hafa í huga:
Hægt er að sjá stöðu losunar á kortasjá Rangárþings eystrameð því að fara á meðfylgjandi slóð og haka í veitur og rotþrær.

Öllum fyrirspurnum er svarað í gegnum tölvupóst. Sé rotþróin á þinni landeign ekki skráð hjá sveitarfélaginu eða upplýsingar tengiliðs er einnig hægt að tilkynna í gegnum bygg@hvolsvollur.is.