Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Skv. núverandi fyrirkomulagi er um að ræða akstursleið í Landeyjum. Akstursleiðir geta þó verið breytilegar eftir notkun og þörf hverju sinni. 
 
Skólabílstjóri þarf að hafa öll tilskilin réttindi til aksturs farþega og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og þjónustulipur og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. 
 
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Rangárþings eystra í síðasta lagi 6. júlí 2026.
 
Nánari upplýsingar veitir Birna Sigurðardóttir, skólastjóri í síma 488-4240, birna@hvolsskoli.is eða Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri í síma 488-4200, anton@hvolsvollur.is