Rangárþing eystra auglýsir lausar stöður verkstjóra, flokkstjóra og starfsmenn hjá Áhaldahúsi við Ormsvöll.

 

Verkstjóri vinnuskólans

Verkstjóri vinnuskólans heyrir undir garðyrkjustjóra. Hann þarf að vera góð fyrirmynd, reyklaus og geta unnið með unglingum.

Starfssvið:

  • Stjórnar og samræmir vinnu flokkstjóra
  • Leiðbeina og stýra vinnuskólahópum
  • Sér um skil á tímaskráningu til launafulltrúa
  • Skilar greinagerð um störf vinnuskólans í sumarlok

Hæfniskröfur:

  • Stjórnunarhæfileikar
  • Reynsla af vinnu með unglingum æskileg
  • Samskipta- og skipulagsfærni
  • Ökuréttindi

Flokkstjóri vinnuskólans

Flokkstjóri vinnuskólans starfar undir stjórn verkstjóra vinnuskólans. Hann þarf að vera góð fyrirmynd, reyklaus og geta unnið með unglingum.

Starfssvið:

  • Leiðbeina og stýra vinnuskólahópum
  • Ber ábyrgð á skilum á tímaskýrslum til verkstjóra

Hæfniskröfur:

  • Stjórnunarhæfileikar
  • Reynsla af vinnu með unglingum æskileg
  • Samskipta- og skipulagsfærni
  • Ökuréttindi

Starfsmenn áhaldahúss

Starfsmenn áhaldahúss heyra ýmist undir verkstjóra áhaldahúss eða garðyrkjustjóra, fer eftir vinnuflokki starfsmanna.

Starfssvið:

  • Ýmis viðhalds og fegrunarverkefni í umhverfi sveitarfélagsins
  • Sláttur lóða og grænna svæða

Hæfniskröfur

  • Góða samskiptahæfileika
  • Vinnusemi og stundvísi
  • Lágmarksaldur 17 ár
  • Ökuréttindi (Vinnuvélaréttindi kostur)

 

Umsóknarfrestur er til 21. febrúar 2025.

Umsóknareyðublað á hvolsvollur.is

Nánari upplýsingar veita Magnús Þór Einarsson – magnusthor@hvolsvollur.is og/eða Ólafur Rúnarsson – olirunars@hvolsvollur.is

 

Athugið - Takmarkaður fjöldi starfa er í boði.