- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Elín R. Sigurðardóttir hefur formlega tekið við hlutverki sínu sem nýr sendiherra Íslands í Svíþjóð. Við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Stokkhólmi nú á dögunum gekk Elín á fund Karls 16. Gústafs Svíakonungs og afhenti honum trúnaðarbréf sitt.
Við athöfnina kom fram mikil tilhlökkun yfir því að halda áfram að þróa og efla hið nána samstarf og sterku vináttu sem ríkir á milli Íslands og Svíþjóðar.
Nýi sendiherrann er vel þekktur í sinni heimabyggð, en eins og margir vita er Elín dóttir hjónanna Guðlaugar Oddgeirsdóttur og Sigurðar Sigurðssonar. Það er því sannkallaður Rangæingur sem stýrir nú samskiptum Íslands og Svíþjóðar ytra.



Myndir: Sanna Argus Tirén/Royal Court of Sweden and Frida Drake/UD