Mikið fjör var í Kaplakrika helgina 8.-9. febrúar, þar sem Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram. Þar réð gleðin ríkjum og var virkilega gaman að sjá hversu mörg tóku þátt í mótinu í ár. Alls voru keppendur Dímonar 14 á aldrinum 11-14 ára.
Rangæingar mega vera stoltir af sínu fólki í Dímon á mótinu enda varð sveit HSK/Selfoss Íslandsmeistari í 4×200 m hlaupi 13 ára pilta á tímanum 2:11,83 mín. Sveitina skipuðu þeir Sæþór Elvar Jóhannsson, Kristján Karl Gunnarsson, Aron Logi Þrastarson og Andri Fannar Smárason. Rangæingar áttu líka Íslandsmeistara í flokki 11 ára en þar voru þær Karólína Orradóttir, HSK/Selfoss, stökk 1,20 m í hástökki og sigraði, auk þess vann Karolína samanlagt fjölþrautina í 11 ára flokki. Karolína var einnig í öðru sæti í 60 m hlaupi, 3 sæti í Kúluvarpi og langstökki.
Álfheiður Silla Heiðarsdóttir, HSK/Selfoss, tók fyrsta sætið í kúluvarpi með kast upp á 6,79 m. Álfheiður var einnig í 3 sæti í hástökki.
Sæþór Elvar náði 3 sæti í langstökki með stökk í uppá 4,58 m
11 stúkur unnu samalagt sinn fokk með yfirburðum þar voru 5 stúlkur frá Dímon, Karolína, Álfheiður Silla, Elvíra Bára, Gestheiður Máney og Ólöf Bergrós. Með í flokki undir merki HSK selfoss voru einnig Þorbjörg Helga úr Heklu og Þórdís Birna frá Garpi. Því var lið þeirra aðeins skipað Rangæingum.
Þess má líka geta þess að í flokki 14 ára stúlkna var jöfn og hörð keppni um verðlaun og lenti Magnea Furuhjelm í 2 sæti í 60 m grindahlaupi á tímanum 10,87 sek
Lið HSK/Selfoss varð í 5. sæti í heildarstigakeppni Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss, sem fram fór í Kaplakrika í Hafnarfirði um síðustu helgi.
HSK/Selfoss fékk 315,8 stig en ÍR sigraði á mótinu eftir harða keppni við FH, sem varð í 2. sæti. ÍR-ingar hlutu 494,5 stig.
Heildar úrslit á mótinu má finna hér: http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00001574