- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Nýstofnuð píludeild Skyttna heldur opið hús föstudaginn 27. mars næstkomandi. Aðstaðan er á efri hæð gamla leikskólans að Hvolsvegi 33 og opið hús verður á milli klukkan 16:00 og 18:30.
Síðustu vikur hafa þeir Guðmundur Jónsson, Andri Már Óskarsson og Sigurður Orri Baldursson unnið ötullega að því að standsetja aðstöðuna og gera hana tilbúna fyrir starfsemi deildarinnar. Húsnæðið hefur verið tekið í gegn og er nú orðið gott rými fyrir iðkendur og áhugafólk um pílukast.
Sérstakur gestur á opna húsinu verður Haraldur Birgisson, landsliðsmaður og landsliðsþjálfari U-18 ára. Hann mun veita byrjendum leiðbeiningar og fara yfir helstu grundvallaratriði íþróttarinnar með gestum.
Á staðnum verður starfsemi deildarinnar kynnt nánar og verður hægt að skrá sig í Skytturnar fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í skipulögðu starfi.
Við hvetjum íbúa til að líta við, kynna sér nýja aðstöðu og prófa íþróttina í góðum félagsskap.
