- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Félagskonur í Ladies Circle 18 bjóða íbúum og öðrum gestum að koma saman í Hvolsskóla og perla armbönd til styrktar Krafti þriðjudaginn 17. nóvember. Viðburðurinn stendur yfir frá klukkan 17:00 til 19:00.
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Með því að mæta og perla gefst fólki tækifæri til að leggja góðu og mikilvægu málefni lið og eiga um leið notalega stund saman í góðum félagsskap.
Nánari upplýsingar um verkefnið og starfsemi félagsins má finna á vefsíðu Krafts, kraftur.org/felagid/perlad-med-krafti/.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Hvolsskóla á morgun.
