Það voru kynstrin öll af fígúrum sem mættu til vinnu að Austurvegi 4 í morgun, þar hefur myndast sú hefð að starfsfólk hæðarinnar sem vinnur hjá hinum ýmsu stofnunum geri sér glaðan dag á öskudaginn og klæði sig upp í búninga. 

Eins og við var að búast var fengin óháð dómnefnd sem veitti verðlaun fyrir bestu búningana.

Gleðin og spenningurinn nær svo hámarki upp úr hádegi þegar von er á syngjandi börnum. 

Var þinn vinnustaður í búningi, endilega sendu okkur myndir á hvolsvollur@hvolsvollur.is.

Gleðilegan öskudag.