Rithöfundurinn Óskar Guðmundsson kynnir nýja bók sína, Holts sögu, á tveimur viðburðum í Rangárþingi eystra í næstu viku. Fyrri kynningin fer fram í Litla salnum á Hvolsvelli mánudagskvöldið 23. nóvember klukkan 20:00. Daginn eftir, þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 14:00, kynnir hann bókina í bókakaffinu á Heimalandi.

Holt undir Eyjafjöllum var höfuðból í héraði í meira en þúsund ár og lengst af helgur kirkjustaður. Í bókinni rekur Óskar þúsund ára sögu sem hefst í Holti og nær til ábúenda á staðnum, fólksins í sveitinni og landsins alls.

Verkið er víðfeðm frásögn af mannlífi undir Eyjafjöllum í heilt árþúsund. Þar er sjónum beint að fjölbreyttum þáttum samfélagsins, svo sem atvinnuháttum og þjóðháttum, auk þess sem greint er frá smáum og stórum ævintýrum úr héraðinu.

Í aðfararorðum bókarinnar segir Óskar Guðmundsson: „Með sögu Holts er reynt að tengja saman víddir tímans; hestar og menn, fjöll og fjara, bylting og afturhald, galdrar og góðkvendi, þjóðhættir og þjóðsögur, hvaðeina fær sitt rými í samhangandi sögu sem hefur Holt undir Eyjafjöllum að miðlægum frásagnarpunkti.“