Tónlistarskóli Rangæinga býður á opið hús í húsnæði skólans á Hvolsvelli, föstudaginn 7.febrúar milli klukkan 10 og 13.
Eins og sjá má á meðfylgjandi auglýsingu verða opnar æfingar, opin kennsla og hljóðfærakynningar.
Við hvetjum íbúa á öllum aldri til að kynna sér starf tónlistarskólans.
