Nú er opið fyrir umsóknir um verkefnastyrki úr Æskulýðssjóði, en umsóknarfresturinn rennur út 15. október næstkomandi klukkan 15:00. Styrkjunum er ætlað að auka möguleika æskulýðsfélaga og -samtaka á að bjóða upp á fjölbreytta starfsemi fyrir félagsmenn sína. Við hvetjum því aðila sem standa að barna- og ungmennastarfi í Rangárþingi eystra til að kynna sér þetta góða tækifæri.

Þeir sem geta sótt um eru æskulýðsfélög og -samtök sem vinna með börnum og ungmennum á aldrinum 6 til 25 ára. Styrkirnir eru veittir til verkefna sem unnin eru fyrir þennan aldurshóp eða með virkri þátttöku hans. Einnig er stutt við þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, ásamt því að veita styrki til nýsköpunar og samstarfsverkefna á milli félaga.

Umsóknarferlið fer fram rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís, þar sem umsækjendur þurfa að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Velja má hvort umsóknin sé skrifuð á íslensku eða ensku. Mikilvægt er að fara vandlega yfir kostnaðaryfirlit áður en sótt er um. Vakin er athygli á því að í kostnaðaráætlun á eyðublaðinu er átt við heildarkostnað verkefnisins, og jafnframt er nauðsynlegt að taka það fram í umsókninni ef einnig er sótt um framlög eða styrki til annarra aðila.

https://island.is/styrkjatorg/styrkur/1-20