Við viljum vekja athygli íbúa, frumkvöðla og sprotafyrirtækja í Rangárþingi eystra á því að Terra hefur nú opnað fyrir umsóknir í umhverfis- og nýsköpunarstyrktarsjóð fyrirtækisins. Markmið sjóðsins er að styðja við aðila sem vinna að góðum lausnum sem stuðla að sjálfbærni og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Terra starfar um land allt og leitar að verkefnum sem falla að styrktarstefnu þeirra. Til að koma til greina þurfa hugmyndir eða verkefni að styðja við eitt eða fleiri af eftirfarandi atriðum:

  • Umhverfismál: Verkefni sem stuðla að hringrásarhugsun, draga úr umhverfisáhrifum eða bæta úrgangsstjórnun fyrir betri umgengni við jörðina.

  • Nýsköpun: Frumlegar lausnir sem hjálpa til við að skapa nýjar leiðir að hringrásarhugsun, bæta nýtingu auðlinda eða stuðla að sjálfbærari samfélögum.

  • Sjálfbærnistefna: Verkefni sem styðja við sjálfbærnistefnu Terra og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

  • Jákvæð áhrif á samfélagið: Verkefni sem hafa góð áhrif á nærsamfélagið eða samfélagið í heild.

Hér í sveitarfélaginu erum við dugleg að huga að umhverfinu og mörg fjölbreytt og mikilvæg verkefni í gangi sem gætu átt erindi í þennan sjóð. Við hvetjum því öll sem vinna að slíkum hugmyndum til að kynna sér málið nánar.

Umhverfis- og nýsköpunar styrktarsjóður | Terra - Skiljum ekkert eftir