Nú er opið fyrir umsóknir í Íþrótta- og afrekssjóð Rangárþings eystra.
Markmið sjóðsins er að styðja við efnilega íþrótta- og afreksmenn sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu með fjárstuðningi og viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur.

Umsóknarfrestur að þessu sinni er til 15. mars 2026.

Bent er á að einungis íþróttagreinar sem viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands koma til greina við úthlutun styrkja.

Sótt er um með rafrænu umsóknarformi og skulu umsækjendur skila inn kennitölu, reikningsnúmeri og öðrum þeim gögnum sem kunna að vera nauðsynleg.

Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun út frá úthlutunarreglum sjóðsins hverjir hjóta styrk.

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.

Umsóknareyðublað: https://www.hvolsvollur.is/is/ibuar/ithrottamidstodin/ithrotta-og-afrekssjodur-rangarthings-eystra