- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Laugardagskvöldið næstkomandi mun Ólöf Brynjólfsdóttir, nemandi í Hvolsskóla, stíga á svið í Hörpu og taka þátt í Músíktilraunum ásamt stelpuhljómsveitinni Æði.
Ólöf á veg og vanda að efninu sem flutt verður, en hún hefur samið bæði lög og texta. Hún skilgreinir tónlistina sem popp og mun hljómsveitin Æði sjá um að spila lögin með henni á stóra sviðinu. Margir heimamenn muna eflaust eftir því þegar stelpurnar komu fram á laugardagsskemmtun Kjötsúpuhátíðarinnar árið 2025, þar sem þær fengu góðar undirtektir tónleikagesta.
Hljómsveitina skipa:
Ólöf Brynjólfsdóttir – söngur
Freyja Magnúsdóttir – gítar
Fanndís Lilja Lárusdóttir – hljómborð
Pálína Björk Bjarnadóttir – bassi
Úlfhildur Vaka Pétursdóttir – gítar
Bryndís Halla Ólafsdóttir – trommur
Við hvetjum íbúa Rangárþings eystra til að gera sér ferð í Hörpuna á laugardagskvöldið og hvetja okkar stelpur áfram. Það er mikilvægt og gefandi að styðja við ungt og efnilegt tónlistarfólk úr heimabyggð.
Áfram Ólöf og Æði!