Nýtt sorphirðudagatal Sorpstöðvar Rangárvallasýslu tekur gildi 1. apríl og gildir til 31. desember.

Breytingin er gerð til að hægt sé að nota eina sorpbifreið í alla losun, sem er bæði hagkvæmara og betra fyrir umhverfið.
Skoðið dagatalið vel því nokkuð er um breytingar frá fyrra skipulagi, t.d. færist losun á Hvolsvelli yfir á þriðjudaga.
Við minnum einnig á að skoða rauðu dagana vel því losunardagar geta verið breytilegir í kringum þá, einkum yfir páska og jól.
 
Hvað breytist:
  • Hvolsvöllur færist yfir á þriðjudaga.
  • Ásahreppur, Heiðarvegur og Hagabraut færast yfir á miðvikudaga.
  • Austur Landeyjar, Hemla, Hvítanes og bæir að Stíflu, Hólma- og Vorsabæjarvegur og Rauðaskriður færast yfir á miðvikudaga.
  • Eyjafjöll og Merkurbæir færast yfir á fimmtudaga.
  • Árbæjarvegur, Bjallavegur og Landvegur ofan Hagabrautar færast yfir á fimmtudaga.
  • Vestur-Landeyjar, Bakkabæir, Oddavegur og Lamhagi verða alltaf bara á föstudögum.

Hvað breytist ekki:

  • Hella og Helluvað (áfram á þriðjudögum en skipta um viku við Hvolsvöll)
  • Bæir vestan við Hvolsvöll, Gata, Sunnuhvoll, Tjaldhólar, Vallarkrókur og Fljótshlíð.
  • Þykkvibær, Ægissíða, Lyngás, Vetleifsholtshverfi, Lækjarbraut, Rauðalækur og bæir í kringum Rauðalæk.
  • Ásvegur, Þjóðólfshagi, Riddaragarður, Fosshólahringur, Landvegur að Hagabraut, Grenjar, Reiðholt og Syðri-Rauðalækur.
  • Rangárvallavegur, Þingskálavegur, Gaddstaðir, Varmidalur, Selalækur og Kirkjubær.