Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli hefur nú opnað nýja upplýsingasíðu á Facebook. Tilgangur hennar er að auðvelda miðlun upplýsinga um leikskólastarfið til aðstandenda og annarra íbúa í Rangárþingi eystra.

Starfsfólk leikskólans er duglegt við að standa fyrir fjölbreyttum verkefnum fyrir börnin. Nýja síðan gefur góða innsýn í daglegt líf þeirra og það mikilvæga starf sem þar fer fram. Með þessari viðbót er stefnt að því að efla enn frekar góð samskipti og upplýsingaflæði við nærsamfélagið.

Við hvetjum foreldra, aðstandendur og aðra áhugasama til að fylgjast með og kynnast leikskólastarfinu betur. Hægt er að skoða nýju síðuna og nálgast fréttir úr Öldunni í gegnum þessa slóð: https://www.facebook.com/profile.php?id=61593871736784.