Fyrstu sporin í nýjan ferðarefil verða saumuð í Kaupmannahöfn dagana 12. til 13. september næstkomandi. Þá verður ferðarefillinn til sýnis á prjónahátíðinni Pakhusstrik sem haldin er á Norðurbryggju.

Ferðarefillinn er fimm metra langur refill sem saumaður er eftir kafla úr 90 metra Njálureflinum, þar sem sagan lifnar við í máli og myndum. Á prjónahátíðinni gefst gestum góður kostur á að skoða refilinn auk þess sem hafist verður handa við að sauma alveg nýjan ferðarefil.

Á staðnum verður boðið upp á kennslu í refilsaum og gestir geta fengið að sauma sitt eigið spor í nýja refilinn. Öll eru velkomin að taka þátt og prófa, líka þau sem eru að taka sín allra fyrstu spor í þessu handverki. Einnig verða fallegir saumapakkar til sölu fyrir áhugasama, en saumað er með íslenskri ull á hörléreft.

Við hlökkum til að sjá sem flesta í Kaupmannahöfn og kynna þetta skemmtilega verkefni fyrir gestum hátíðarinnar.

Hægt er að fylgjast með ferðum Njálurefils á facebook síðunni https://www.facebook.com/Njalurefill