Minnisblað sveitarstjóra, lagt fram á fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2026.

Í venjulegu árferði væri eflaust vel við hæfi að byrja þetta minnisblað á því að tala um að veturinn væri nú í hámarki, unnið væri að snjómokstri og almennt, biðja fólk um að fara varlega þegar hver veðurviðvörunin á fætur annarri á okkur dynur. En það er víðsfjarri, og að flestu leyti venst þetta bara alveg hreint ágætlega þó svo að vissulega væri nú alveg tilbreyting í því að sjá smá snjóföl.

Að venju stikla ég hér á stóru um nokkur af þeim helstu verkefnum sem við hjá Rangárþingi eystra og aðrir í sveitarfélaginu okkar höfum verið að fást við að undanförnu.

 

Starfsmannamál og ráðningar

Auglýsing um starf fjármála- og skrifstofustjóra var birt fyrir nokkru og var umsóknarfrestur til og með 26. janúar sl. Óhætt er að segja að starfinu hafi verið sýndur mikill áhugi og alls bárust 18 umsóknir um starfið. Ráðningarfyrirtækið Intellecta í samvinnu við undirritaðan og fulltrúa byggðarráðs Rangárþings eystra mun vinna við ráðningarferlið. Níu umsækjendur hafa verið boðaðir í fyrsta viðtal og munu þau fara fram dagana 12. og 13. febrúar. Eftir fyrstu viðtalslotu verður hópurinn þrengdur enn frekar og vonast er til þess að niðurstaða um ráðningu liggi fyrir nú í lok febrúar.

Gengið hefur verið frá ráðningu nýs byggðaþróunarfulltrúa fyrir Rangárvallasýslu. Stefán Friðrik Friðriksson hefur sinnt stöðunni undanfarin tvö ár og vil ég fyrir hönd sveitarfélagsins koma á framfæri kærum þökkum til hans fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélaga í Rangárvallasýslu. Stefán hefur hafið störf sem starfsmaður SASS og Orkídeu og mun eftir sem áður hafa starfsstöð hér í ráðhúsi Rangárþings eystra. Nýr byggðaþróunarfulltrúi, Sigríður Harpa, var valin úr hópi 9 umsækjenda og mun hún taka til starfa á næstu dögum. Fyrir hönd Rangárþings eystra býð ég Sigríði Hörpu velkomna til starfa og hlakka til samstarfsins.

Hér fyrir fundinum okkar í dag liggur fyrir beiðni frá Guri Hilstad Ólason um lausn frá störfum í sveitarstjórn, nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Guri hefur starfað á vettvangi sveitarstjórnarmála fyrir hönd Rangárþings eystra til fjölda ára, ásamt því að vinna í fullu starfi sem kennari við Hvolsskóla. Fyrir hönd Rangárþings eystra vil ég koma á framfæri kærum þökkum til Guri Hilstad fyrir vel unnin störf í þágu samfélagsins okkar hér í Rangárþingi eystra og óskum henni að sjálfsögðu velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Brunavarnir Rangárvallasýslu – Nýr dælubíll

Brunavarnir Rangárvallasýslu hafa nú tekið í notkun nýjan dælubíl í útkallsflota slökkviliðsins. Um er að ræða dælubíl af gerðinni Scania og mun hann hafa aðsetur milli útkalla á slökkvistöðinni á Hellu. Bíllinn er allur hinn glæsilegasti og vel tækjum og búnaði búinn til að sinna verkefnum í þágu brunavarna í Rangárvallasýslu. Brunavarnir buðu út smíði á bílnum skv. mjög skýrri forskrift um hvernig sá bíll skyldi vera til að þjóna sínum tilgangi sem best. Samið var við fyrirtækið Fastus ehf um smíði bílsins og frá samkomulagi tók smíði hans um eitt ár. Til gamans má nefna að bíllinn er smíðaður í Noregi af fyrirtækinu Egenes Brannteknikk AS, en það er sama fyrirtæki og smíðaði MAN-dælubíl sem keyptur var árið 1999, og hefur aðsetur á slökkvistöðinni á Hvolsvelli og hefur sinnt starfi sínu afskaplega vel án teljandi vandkvæða. Betur má ef duga skal og þurfa Brunavarnir Rangárvallasýslu að halda áfram að efla búnað sinn, tækjakost og húsnæði á næstu árum til að fylgja uppbyggingu aðildarsveitarfélaga og vera í stakk búin til að bregðast við þegar á þarf að halda. Innilega til hamingju með nýja bílinn Brunavarnir Rangárvallasýslu og vonandi þarf að nota hann sem allra minnst.

Þjóðlendur – Lóðaleigusamningar

Það er ánægjulegt að segja frá því að nú í janúar var lokið við að ganga frá lóðaleigusamningum við aðila um leigu á lóðum innan þjóðlendna í Þórsmörk og á Emstrum. Samningarnir eru gerðir í kjölfar auglýsinga um úthlutun þar sem sett voru skýr skilyrði. Sveitarfélagið hefur unnið að þessari samningagerð um nokkurt skeið eða frá því að þjóðlendur voru stofnaðar í Rangárþingi eystra. Tekjur af þessum samningum koma til góðra nota til uppbyggingar á svæðunum svo sem til aðgengismála, stígagerðar, skipulagsmála o.fl. Fyrirhugað er að auglýsa aðrar óbyggðarlóðir innan þjóðlendu í Þórsmörk síðar á þessu ári. Ljóst er að talsverður áhugi er fyrir þeim lóðum og verða þær auglýstar með áberandi hætti þar sem öllum er gefinn kostur á því að sækja um lóðirnar. Á umræddum lóðum er ekki gert ráð fyrir miklu byggingarmagni, heldur lágstemmdri fjallaskálabyggingu ásamt tilheyrandi þjónustu.

Búsetuúrræði fyrir fatlaða við Dalsbakka

Það ríkti mikil gleði þegar fyrsta skóflustunga að nýju búsetuúrræði fyrir fatlaða var tekin við hátíðlega athöfn nú í lok janúar. Það reyndar ekki fögrum sögum af því hvernig gekk að moka með stunguskóflum í frostna jörð og sjást víst ekki mikil ummerki eftir skóflustunguna á yfirborði. En von er á stórtækari vinnuvélum á reitinn fljótlega, sem mun án efa skilja eftir sig nánari ummerki. En allavega skóflustungan var tekin og verkefnið mun hefjast innan skamms. Um er að ræða verkefni sem Rangárþing eystra hefur talað og barist fyrir í áraraðir því vissulega er þörfin til staðar. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélagsins, Brákar íbúðafélags og Bergrisans bs. Um er að ræða 6 íbúða kjarna ásamt starfsmannarými, samtals rúmlega 500m2 sem mun rísa á horni Öldubakka og Dalsbakka. Líkt og áður sagði er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist af fullum krafti á næstu dögum og má því búast við einhverju raski á svæðinu. Áætlað er að búsetukjarninn verði tilbúinn til leigu snemma árs 2027 og mun Bergrisinn bs. sjá um úthlutun íbúðanna til einstaklinga sem uppfylla skilyrði fyrir búsetu í íbúðunum.

 

Fundir með Vegagerð – Verkefni fram undan

Tveir fundir voru haldnir nýlega með fulltrúum Vegagerðarinnar um tvö aðskilin en mjög mikilvæg málefni. Á fyrri fundinum voru til umræðu framkvæmdir Vegagerðarinnar við endurbyggingu þjóðvegarins í gegnum Hvolsvöll. Unnið hefur verið að því undanfarið að hanna og kostnaðarmeta framkvæmdir við breikkun vegarins, gerð miðeyja, aðreina, fráreina og heildarendurbætur vegarins. Nú er svo komið að loks náðist á áætlun Vegagerðar að hefja framkvæmdir í sumar. Byrjað verður á framkvæmdum við gönguþverun ásamt miðeyju við Hótel Lóu, Lava og apótekið. Um er að ræða framkvæmd sem beðið hefur verið eftir í áraraðir og verður klárlega tekið fagnandi. Þessi framkvæmd mun klárast í byrjun sumars og gert er ráð fyrir að framkvæmdum við endurbætur vegarins í heild ásamt þverunum verði áframhaldið og kláraðar árið 2027. Rangárþing eystra hefur nú þegar gert ráð fyrir því í sínum áætlunum að leggja gang- og hjólastíga samhliða framkvæmdum Vegagerðarinnar.

Á síðari fundi sveitarfélagsins með Vegagerð var til umfjöllunar hætta vegna grjóthruns á þjóðvegi 1 við Holtsnúp. Fjármagn hefur náðst til aðgerða og verður farið í framkvæmdir við varnir vegna grjóthruns á svæðinu nú í sumar. Það er virkilega ánægjulegt að áheyrn um framkvæmdir hafi náðst, enda um mjög mikilvæga öryggisframkvæmd að ræða sem bæði íbúar og sveitarfélagið hefur bent á um langa hríð. Vegagerðin hefur nú þegar fengið leyfi landeigenda og sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins. Til framtíðar hefur sveitarfélagið einnig hafið vinnu við endurskoðun aðalskipulags er varðar tilfærslu á veginum til að forðast hættu á grjóthruni á þessum slóðum.

Fundur með Veitum

Undirritaður ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa átti góðan fund með forsvarsfólki Veitna nýverið. Það er nauðsynlegt fyrir alla aðila sem koma að uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu að hittast reglulega til þess að miðla upplýsingum og bera saman bækur sínar. Eins og áður hefur komið fram í minnisblaði sveitarstjóra og í fundarbókunum sveitarstjórnar er gert ráð fyrir heildarendurnýjun á gatnagerð Litlagerðis nú í sumar, en um er að ræða sambærilega framkvæmd og gerð var í Stóragerði sl. sumar. Upp hefur komið sú staða að Veitur telja sig ekki hafa burði til þess að nýta opna skurði vegna gatnagerðar til að endurnýja sína veitu í Litlagerði. Það þykir okkur hjá sveitarfélaginu miður og höfum boðist til að aðstoða á allan hátt svo að þessari framkvæmd geti orðið og ekki þurfi að koma til frekari framkvæmda innan fárra ára. Ekki hefur enn náðst niðurstaða í málið en að sjálfsögðu vonumst við til að hún verði jákvæð þegar yfir líkur. Á fundinum var einnig rætt um þá uppbyggingu sem fram undan er í sveitarfélaginu sem krefst verulegrar aukningar á flutningi heits vatns á svæðið. Þær upplýsingar fengust að til stæði að ráðast í umtalsverðar boranir í Kaldárholti í sumar og ef þær ganga vel verður hægt að efla kerfið til muna innan tveggja ára. Að síðustu var einnig rætt um hvort Veitur hefðu hug á því að ráðast í heitavatnsleit með sveitarfélaginu austan Hvolsvallar og var ekkert útilokað í þeim málum.

 

Að lokum

Líkt og áður hef ég hér einungis farið yfir brot af því sem á daga okkar hefur drifið undanfarin misseri. Það hefur mikið mætt á okkar góða samfélagi undanfarið á ýmsan hátt. Mig langar hér í lokin að brýna okkur öll til að sýna hvert öðru ást og umhyggju. Það eiga margir um sárt að binda. Verum til staðar fyrir hvert annað í stóru og smáu. Eitt klapp á bakið, ein há fimma, já eða gott öflugt knús getur gert kraftaverk.

Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra.